Fréttir Norðursiglingar
6. september 2005
Ferð Hauks heldur áfram
Eftir frábærar móttökur á Bolungarvík lagði skonnortan Haukur af stað í gærmorgun áleiðis til Reykjavíkur og kom í höfn á Ólafsvík seint í gærkvöldi. Hvass vindur var á Breiðafirðinum sem reyndi bæði á áhöfn og bát en vel gekk. Áhöfnin var fegin landtökunni og hvíldist vel í nótt.
Nú bíður Haukur og áhöfnin eftir að lægi til þess að geta lokið síðasta áfanganum á ferðinni. Samkvæmt veðurspánni verður hægari vindur í kvöld og nótt og því líklegt að lagt verði af stað þá.
Við bíðum spennt frekari frétta af veðri og vindum og óskum áhöfninni alls hins besta síðasta spölinn.
KK




























