Fréttir Norðursiglingar
11. september 2005
Breskur blaðamannahópur heimsækir Húsavík
Hópur fimm breskra blaðamanna heimsótti Húsavík síðastliðinn laugardag. Ferðin var skipulögð af ferðaskrifstofunni Discover the World í London og Ferðamálaráði. Blaðamennirnir heimsóttu margar af helstu perlum norðurlands t.d. Mývatn og nágrenni, hvalaskoðun, hvalasafnið, en könnuðu einnig nokkra af minna þekktu afþreyingarmöguleikunum, t.d. berjatínslu, vín- og snapsgerð, silungaveiði (úr eldiskerjum!), matar og vín smökkun og margt fleira.
Það viðraði ágætlega til hvalaskoðunar þrátt fyrir örlítinn kulda, og tókst áhöfn Norður-Siglingar að finna hnúfubak sem lék listir sínar fyrir fólkið og hápunkturinn var þegar hnúfubakurinn stökk þrisvar sinnum.
Blaðamennirnir eru af ólíkum bakgrunni og skrifa fyrir mjög fjölbreytt blöð/tímarit/vefsíður t.d. BBC Good Food, Norwich Union magazine, Trip magazine, Pink Paper, Time of Your Life, Independent and Somerset Independent, IPC Wedding Magazine and the Culinary Guide (vefsíða).
Við þökkum þeim kærlega fyrir komuna og hlökkum til að lesa greinarnar þeirra.
KK































