Beint á leiðarkerfi vefsins
Norðursigling - Húsavík

Fréttir Norðursiglingar

20. september 2005

Enn af Reykjavíkurferð Skonnortunnar Hauks.


Tilgangur ferðarinnar var að þjálfa starfsfólk Norður-Siglingar í siglingum og kynna því Ísland af sjó. Jafnframt að kynna landsmönnum skútuna sem slíka en hún er eina seglskip sinnar tegundar á Íslandi. Haukur er búin skonnortugaffalreiða sem er samskonar reiði og flest hákarlaskip voru búin sem gerð voru út frá Norðurlandi á 19. öldinni.

Siglingin frá Ólafsvík til Reykjavíkur gekk vel og renndi Haukur í Reykjavíkurhöfn að morgni 7. september í blíðskaparveðri. Næstu tvo daga var siglt með ýmsa hópa um sundin blá við Reykjavík og var ljúfur byr svo að farþegar gátu notið þess að sigla seglum þöndum án vélarafls. Í tveimur af ferðunum bauð Norður-Sigling ferðaþjónustuaðilum í Reykjavík og nágrenni í siglingu til að kynna fyrir þeim skonnortuna en einnig að þakka fyrir ánægjulegt samstarf í sumar sem og liðin sumur.

Seinnipart föstudagsins 9. september lagði Haukur úr höfn áleiðis til Húsavíkur. Siglingin yfir Faxaflóa og Breiðafjörð reyndi mikið á áhöfn, bát og reiða því veðurguðirnir létu hressilega af sér vita og sendu á leiðangurinn eina 13-18 m/s af suðri. Þegar komið var fyrir Bjargtanga breyttist veður og sjólag til hins betra en þegar komið var norðar með Vestfjörðunum var kominn NA strekkingur og því siglt inn á Suðureyri þar sem áhöfnin beið betra ferðaveðurs og hvíldist. Að morgni sunnudagsins 11. september var lagt upp í síðasta legg ferðarinnar og þrátt fyrir mótvind nær alla leiðina tók Haukur höfn á Húsavík 24 klst síðar eða kl. 7 að morgni mánudags.

Nánari ferðasaga verður birt hér á vefnum von bráðar eða þegar um fer að hægjast í fyrirtækinu.

ÞH



Siglt inn til Reykjavíkur í morgunbirtunni


Hörður uppi í mastri að ditta að reiðanum


Sjólagið var á köflum ansi úfið þótt bjart væri yfir


Siglt fyrir Horn á Vestfjörðum


Spegilsléttur sjór var þegar siglt var fyrir Vestfirðina á suðurleiðinni


Glaðbeittar ferðaskrifstofudömur í siglingu út frá Reykjavík

Viðurkenningar & vottun:

Alþjóðlegar og innlendar viðurkenningar frá 1995Norðursigling er leyfishafi FerðamálastofuNorðursigling er leyfishafi FerðamálastofuNorðursigling er meðlimur í Íslensku hvalaskoðunarsamtökunum


Mynd

  • Náttfari og hnúfubakur


Fánar

In English
  • North Sailing
  • Húsavík Original Whale Watching
  • North Sailing Schooners
  • Gamli Baukur
  • Skuld