Beint á leiðarkerfi vefsins
Norðursigling - Húsavík

Fréttir Norðursiglingar

26. september 2005

Sænski sendiherrann tilvonandi á Húsavík


Dagana 16. – 18. september sl. heimsóttu sænsku sendiherrahjónin tilvonandi Norður-Siglingu á Húsavík. Sendiherrann, Frú Madeleine Ströje-Wilkens og maður hennar, Martin Wilkens komu til landsins með Norrænu 13. September og eyddu nokkrum af fyrstu dögum Íslandsdvalar sinnar á Húsavík. Madeleine tekur við stöðu sendiherra Svíþjóðar á Íslandi þ. 30. september n.k.

Norður-Sigling hefur í samvinnu við Húsavíkurbæ og Kaldbakskot leitast við að treysta og skapa frekari sambönd milli Íslands og Svíþjóðar í tengslum við tilvonandi sýningu um sænska landkönnuðinn Garðar Svavarsson. Því var það Norður-Siglingu heiður að fá þau hjónin í heimsókn og fá tækifæri til að kynna þeim fyrirtækið og hugmyndir þess sem og að sýna þeim Húsavík.

Þrátt fyrir að vera í óopinberri heimsókn, snæddu þau hjónin hádegsiverð á Gamla Bauk með bæjarstjóranum Reinhard, heimsóttu hjónin í Kaldbakskotum, fengu fyrirlestur um orkumál Húsavíkinga í Orkuveitunni, Ásbjörn sýndi þeim Hvalasafnið og Guðni Halldórsson leiðsagði þeim um Safnahúsið.

Norður-Sigling þakkar þessum heiðurshjónum fyrir ánægjulega daga á Húsavík og óskar þeim velgengni í leik og starfi á Íslandi.

ÞH



Sendiherrahjónin og Hörður, fr.kv.stj. Norður-Siglingar, uppá Gónhól að ræða málin


Margt er að sjá frá veröndinni í Kaldbak


Sigurjón í Kaldbak sýni þeim kotin sín


Svíarnir voru hrifnir af heitu pottunum


Áhugasamir áheyrendur á fyrirlestri í Orkuveitunni


Guðni var ekki í vandræðum með að fræða hjónin um hin ýmsu rit og málefni

Viðurkenningar & vottun:

Alþjóðlegar og innlendar viðurkenningar frá 1995Norðursigling er leyfishafi FerðamálastofuNorðursigling er leyfishafi FerðamálastofuNorðursigling er meðlimur í Íslensku hvalaskoðunarsamtökunum


Mynd

  • Náttfari og hnúfubakur


Fánar

In English
  • North Sailing
  • Húsavík Original Whale Watching
  • North Sailing Schooners
  • Gamli Baukur
  • Skuld