Fréttir Norðursiglingar
31. janúar 2006
Gamli Baukur – andlitslyfting
Lokað hefur verið á Gamla Bauk nú í janúar vegna endurbóta en opnað verður á ný föstudaginn 3. febrúar. Miklar endurbætur hafa átt sér stað í eldhúsi staðarins en einnig hefur efri hæðin fengið nýjan blæ, salernin hafa verið yfirfarin og gólf og veggir lakkaðir og barinn endurbættur. Einnig fær veitingasalurinn nýjan svip, m.a. með skemmtilegum lömpum með skermum saumuðum úr gömlum siglingarkortum Norður-Siglingar.
Norður-Sigling leggur metnað sinn í að húsnæðið, sem einnig hýsir skrifstofu og bókunarmiðstöð fyrirtækisins, sé aðlagandi og haldi uppi heiðri Húsvískrar strandmenningar.
Þar sem þekking og reynsla Norður-Siglingar byggist að mestu leiti á ferðaþjónustu á sjó, en ekki veitingarekstri var góðkunningi Gamla Bauks, Börkur Emilsson og fyrirtæki hans Sölku-veitingar, fenginn til að annast veitingareksturinn. Börkur sá um veitingarekstur á Gamla Bauk tvö fyrstu starfsárin og ætti því að vera öllum hnútum kunnugur.
Við óskum Berki og félögum góðs gengis og vonumst til að bæjarbúar og ferðamenn njóti sín á ‘nýjum’ Bauk.
KK

Fína eldhúsið með nýju stálplötunum.

Sigmar hjá Trésmiðjunni Rein leggur gólfdúk á eldhúsið.

Bjössi Sör, alltaf að! Gólfin þarf að skrúbb vel upp áður en hægt var að lakka

Hreiddi ‘lakksérfræðingur’ fyrirtækisins situr ekki auðum höndum þessa dagana.

Börkur bardúsar í eldhúsinu

Sigga málar og málar....



























