Fréttir Norðursiglingar
11. apríl 2006
Húsavíkurslippur
Nú á dögunum var Bjössi Sör, einn báta Norður-Siglingar tekinn upp í slipp á Húsavík. Er það sérstakt ánægjuefni fyrir Norður-Siglingarfólk því mikil óvissa hefur ríkt um framtíð slippsins síðan fyrrverandi rekstraraðili hætti rekstri.
Reiknað er með að Bjössi Sör verði klár í slaginn innan fárra daga.
Meðfylgjandi myndir voru teknir í slippnum og spilhúsi.
ÞH
Bjössi Sör stendur teinréttur í Húsavíkurslipp
Búið að þvo bátinn og hafist handa við viðhald

Hreiðar og Bjössi Sör (maðurinn sem báturinn er nefndur eftir) að botnmála

Bjössi Sör málar nafna sinn

Hreiðar að laga til í spilhúsinu

Bjössi Sör og Hörður ræða málin



























