Beint á leiðarkerfi vefsins
Norðursigling - Húsavík

Fréttir Norðursiglingar

8. maí 2006

Hnúfubakar fara á kostum


Enn ein frábær hvalaskoðunarferðin er að baki og óhætt er að segja að maímánuður hafi aldrei farið eins vel af stað og nú. Í ferðinni sáust alls 4 hnúfubakar, 6 höfrungar og nokkrar hnísur. Tveir af hnúfubökunum sýndu listir sínar svo um munaði við mikla hrifningu allra um borð, ekki síst áhafnarinnar.

Eftir að hafa verið í æti um stund sitt í hvoru lagi, færðu þeir sig saman og tóku að stökkva, stundum ekki meira en 10-15 metra frá bátnum. Eftir u.þ.b. 30 stökk tók annar hnúfubakurinn upp á því að liggja á bakinu og veifa bægslunum upp í loft, skella þeim í yfirborðið og velta sér í hringi í um 30 mínútur. Greinilegt var að hvalurinn hafði áhuga á bátnum og virtist hreinlega njóta þess að vægast sagt áhugasamir farþegar smelltu ljósmyndum af honum í gríð og erg.

Hér að neðan eru myndir sem Þórunn Harðardóttir leiðsögumaður tók í ferðinni.

ÞH



Tveir hnúfubakar rétt við borðstokkinn en þetta var aðeins byrjunin


Eftir dálitla stund tóku þeir að stökkva báðir í einu


Um það bil 30 sinnum lyftu þeir sér upp úr sjónum


Eftir stökkseríuna hófst mikill bægslagangur...


...sem entist í rúman hálftíma!


Hér er hnúfubakurinn á hliðinni og uppúr standa bæði sporður og bægsli

Viðurkenningar & vottun:

Alþjóðlegar og innlendar viðurkenningar frá 1995Norðursigling er leyfishafi FerðamálastofuNorðursigling er leyfishafi FerðamálastofuNorðursigling er meðlimur í Íslensku hvalaskoðunarsamtökunum


Mynd

  • Náttfari og hnúfubakur


Fánar

In English
  • North Sailing
  • Húsavík Original Whale Watching
  • North Sailing Schooners
  • Gamli Baukur
  • Skuld