Fréttir Norðursiglingar
26. maí 2006
Góð byrjun eftir brælu
Eftir nokkurra daga hlé á hvalaskoðun vegna norðan brælu og ofankomu... já snjókomu... sigldi Bjössi Sör aftur út á flóann í gær.
Þrátt fyrir að töluverð kvika væri enn á flóanum, fann hin þaulreyndi Hrólfur Þórhallsson þrjá stóra hnúfubaka sem skemmtu hátt á þriðja tug farþega konunglega.
Norður-Siglingarfólk trúir því að sumarið sé nú endanlega komið til að vera og hlakkar til júnímánaðar þegar ferðum fjölgar í 3 á dag.
Meðfylgjandi myndir voru teknar á dögunum.
HH




























