Beint á leiðarkerfi vefsins
Norðursigling - Húsavík

Fréttir Norðursiglingar

26. maí 2006

Búrhvalavaða á Skjálfanda


Í hvalaskoðunarferð á Bjössa Sör á Skjálfandaflóa í dag sást búrhvalavaða en búrhvalur hefur ekki sést áður í ferðum Norður-Siglingar þau 11 sumur sem fyrirtækið hefur boðið upp á hvalaskoðun frá Húsavík.

„Við höfum ekki séð búrhval áður hér í flóanum, aðeins blástur frá þeim í fjarlægð" sagði Þórunn Harðardóttir sem hefur verið leiðsögumaður hjá fyrirtækinu síðan 1997.

Hvalaskoðunarferðir hófust aftur frá Húsavík í gær eftir nokkurra daga hlé vegna norðan brælu. Þrátt fyrir töluverða kviku á flóanum, fann Hrólfur Þórhallsson skipstjóri á Bjössa Sör þrjá stóra hnúfubaka sem skemmtu farþegum konunglega. En hafi farþegum gærdagsins þótt mikil upplifun að sjá hnúfubakana var upplifun farþeganna í dag enn meiri þegar búrhvalirnir birtust.

Fréttin er tekin af www.mbl.is



Búrhvalir sem eru stærstu tannhvalir veraldar verða 18 metra langir og um 50 tonn á þyngd.

Birt með góðfúslegu leyfi: Steven Rosen


Búrhvalirunni flýtur eins og drumbur í yfirborðinu meira og minna í hátt í tíu mínútur...

Birt með góðfúslegu leyfi: Steven Rosen


...áður en hann stingur sér svo í kafið sem getur varað í allt að eina og hálfa klukkustund og dýpið sem þeir ná niður á hefur verið mælt mest um 3 km.

Birt með góðfúslegu leyfi: Steven Rosen

Viðurkenningar & vottun:

Alþjóðlegar og innlendar viðurkenningar frá 1995Norðursigling er leyfishafi FerðamálastofuNorðursigling er leyfishafi FerðamálastofuNorðursigling er meðlimur í Íslensku hvalaskoðunarsamtökunum


Mynd

  • Náttfari og hnúfubakur


Fánar

In English
  • North Sailing
  • Húsavík Original Whale Watching
  • North Sailing Schooners
  • Gamli Baukur
  • Skuld