Fréttir Norðursiglingar
4. júní 2006
4 hrefnur, 10 hnúfubakar, 10 blaðamenn og 16 höfrungar.
Aldrei áður hefur annað eins magn af hnúfubökum sést í ferðum Norður-Siglingar en í gærkvöld sáust allt að 10 hnúfubakar ásamt 3-4 hrefnum. Tveir bátar voru úti í gærkvöld í þessari miklu miðnætursólar hvalaveislu en það voru skonnortan Haukur og Bjössi Sör og nutu farþegar ólýsanlegs sjónarspils kvöldsólar og blásandi stórhvela.
Í dag sigldu svo margir bátar út frá Norður-Siglingu en á bilinu 100 - 250 manns á dag hafa nýtt sér þjónustu félagsins daglega undanfarna daga og veislan heldur áfram ef að svo má segja. Meðal farþega í dag var hópur blaða og sjónvarpsmanna frá Frakklandi sem fékk sérmeðferð á skonnortunni Hauk.
Það sem af er sumri hefur Norður-Sigling farið rúmlega 50 ferðir og séð hvali í þeim öllum, þar af hnúfubaka í öllum utan einnar, en meðfylgjandi myndir hafa verið teknar undanfarna tvo daga.
HH

photo: Heimir Harðar

photo: Heimir Harðar

photo: Heimir Harðar

photo: Heimir Harðar

photo: Arngrímur Arnarson

photo: Heimir Harðar



























