Fréttir Norðursiglingar
6. júní 2006
Hnúfubakar við Húsavíkurhöfn
Ekkert lát er á stórhvalagengdinni í Skjálfandaflóa og nú er svo komið að varla þarf að fara út úr höfninni til þess að skoða stórhvelin. Jafnvel hafa forsvarsmenn Norður-Siglingar farið að óttast hið versta og velt því fyrir sér hvort bátarnir verði ekki nauðsynlegir heldur nóg að rölta fram bryggjuna.
Það er samt ástæða til að hvetja fólk til skella sér á sjóinn og sjá þessa hvalaveislu með eigin augum en ágætis veðurspá er framundan.
HH

Hnúfubakur stingur sér með Húsavíkurkirkju í baksýn.
mynd: Heimir

mynd: Heimir

mynd: Heimir

Bjössi Sör með hnúfubak rétt fyrir utan höfnina fyrr í kvöld.
mynd: Heimir

Og þarna sést Húsavíkurfjall og hluti húsavíkurbæjar vel í bakgrunni.
mynd: Heimir


























