Fréttir Norðursiglingar
26. júní 2006
Fjórar tegundir
Ekki er hægt að segja annað en að brjálað hafi verið að gera hjá Norður-Siglingu síðustu daga og hvalaveislan heldur áfram.
Í kvöld sigldu Hrólfur og Hilmar Valur á vit ævintýranna með 50 farþega á Bjössa Sör, þar af sjónvarps fólk frá þýskri sjónvarpsstöð.
Fjórar tegundir hvala sáust í ferðinni eða 10 höfrungar, 1 hrefna, 3 hnúfubakar og 1 steypireyður.
Rétt áður en þessar fréttir bárust höfðu Einar og Nils komið með 20 hæstánægða farþega úr "Hvalir, Lundar og Segl" og lýstu þeir félagar súrealísku ástandi þegar hnúfubakur stökk í fjarska til að reyna að fanga athygli agndofa farþeganna sem voru með 30 metra steypireyði rétt við síðu bátsins.
Það er s.s. ótrúlega líflegt á Skálfandanum þessa dagana og hvetjum við íslendinga til að nýta tækifærið í blíðunni sem ríkir enn og ófyrirséð á Húsavík.
HH

Einhvernveginn svona hefur stemmingin verið á Skjálfandanum í kvöld.



























