Beint á leiðarkerfi vefsins
Norðursigling - Húsavík

Fréttir Norðursiglingar

8. júlí 2006

Starfsmannasíða Norður-Siglingar uppfærð


Starfsmannasíða Norður-Siglingar hefur heldur betur fengið andlitslyftingu, en bæði hafa ný andlit birst á síðunni auk þess sem upplýsingar um starfsfólk hafa verið uppfærðar.
Í sumar býður Norður-Sigling stórglæsilegan hóp nýrra starfsmanna velkominn til starfa, en auk nýrra starfsmanna er að finna nokkur andlit sem áður hafa prýtt flota Norður-Siglingar.


Hér fyrir neðan má sjá hluta nýja starfsfólksins, en auk þeirra bjóðum við hjartanlega velkomin til starfa: Finnsku "hafmeyjuna" Söru Tobiasson, Þórhildi Jónsdóttur (en þær hafa báðar unnið hjá Norður-Siglingu áður), Berglindi Steinadóttur sem hóf störf á skrifstöfu Norður-Siglingar í byrjun sumars og Martin Varga, sem kemur alla leið frá Dortmund í Þýskalandi til þessa að aðstoða um borð í bátunum.

Hér má skoða starfsmannasíðu Norður-Siglingar.



Huld H.



Einar Ófeigur Jónsson
Einar er einn af reyndustu hvalaskoðunarskipstjórum landsins en sem slíkur hefur hann starfað á sumrin frá 1997 er hann stýrði Moby Dick um Skjálfanda. Einar er að auki hagur á tré, járn, ál og örflögur og kemur sterkur inn í tölvu og fjarskiptamálum fyrirtækisins.


Arnþrúður Dagsdóttir
Arnþrúður, eða Ditta eins og hún er oftast kölluð, hefur dvalið í Hollandi síðustu misseri þar sem hún ma. lagði stund á listnám. Auk hollensku talar Ditta spænsku og þýsku og er hún vafalaust mikil og góð viðbót við tungumálaflóru starfsfólksins. Það er mikil ánægja að fá hana til liðs við okkur.


Fredéric Genron
Frédéric kemur frá Frakklandi og leggur nú stund á ferðamálafræði í heimalandi sínu og mun vera í starfsnámi hjá Norður-Siglingu í sumar.


Matthias Pelz
Matthias er þýskur og nýfluttur til Húsavíkur en hefur búið á Íslandi í nær 3 ár og mun nú slást í lið með Norður-Siglingu.

Viðurkenningar & vottun:

Alþjóðlegar og innlendar viðurkenningar frá 1995Norðursigling er leyfishafi FerðamálastofuNorðursigling er leyfishafi FerðamálastofuNorðursigling er meðlimur í Íslensku hvalaskoðunarsamtökunum


Mynd

  • Náttfari og hnúfubakur


Fánar

In English
  • North Sailing
  • Húsavík Original Whale Watching
  • North Sailing Schooners
  • Gamli Baukur
  • Skuld