Beint á leiðarkerfi vefsins
Norðursigling - Húsavík

Fréttir Norðursiglingar

22. september 2006

Skonnorta Íslands í Reykjavíkurhöfn


Eftir ævintýralega siglingu frá Húsavík til Reykjavíkur er skonnortan Haukur nú loks komin í Reykjavíkurhöfn á ferð sinni í kringum landið.

Í dag 22. sept. og á morgun 23. sept. frá kl. 10-17 verður opið "hús" í Hauk og öllum velkomið að kíkja í heimsókn og skoða skonnortuna. Haukur liggur við flotbryggjuna við Ægisgarð (rétt hjá hvalaskoðunarbátunum Hafsúlunni og Eldingu).

Næstu daga er svo fyrirhugað að halda hringferðinni áfram í kringum landið og verður brottför látin ráðast af veðri og vindum því eins og segir í máltækinu: Kóngur vill sigla en byr hlýtur að ráða!

ÞH



Haukur við bryggju í Reykjavík


Siglt um sundin í morgunbirtunni


Reykjavík fyrir stafni


Haukur undir seglum - 4 af 6 seglum komin upp

Viðurkenningar & vottun:

Alþjóðlegar og innlendar viðurkenningar frá 1995Norðursigling er leyfishafi FerðamálastofuNorðursigling er leyfishafi FerðamálastofuNorðursigling er meðlimur í Íslensku hvalaskoðunarsamtökunum


Mynd

  • Náttfari og hnúfubakur


Fánar

In English
  • North Sailing
  • Húsavík Original Whale Watching
  • North Sailing Schooners
  • Gamli Baukur
  • Skuld