Beint á leiðarkerfi vefsins
Norðursigling - Húsavík

Fréttir Norðursiglingar

4. október 2006

Haukur lýkur hringferð sinni um Ísland


Fyrir hádegi á mánudaginn síðastliðinn leið skonnortan Haukur inn í Húsavíkurhöfn með öll segl uppi og dautt á vél og lagðist þannig að bryggju eftir viðburðarríka hringferð í kringum landið.

Upphaflega var áætlað að vera með Haukinn á Vestnorden ferðasýningunni í Reykjavík þann 11-13. september sl. og sigla svo til Færeyja en skipið lagði úr höfn á Húsavík föstudaginn 8. september. Vonskuveður við Vestfirði hamlaði för og var Haukur skilinn eftir á Siglufirði og fór því Norður-Sigling skonnortulaus á Vestnorden að þessu sinni.

Viku síðar, eða 15.sept var svo áhöfn send til Siglufjarðar og hélt hringferðin áfram en nú var útséð með Færeyjarferð þar sem komið var of langt fram á haustið til að það væri þess virði. Hringferð um landið skildi samt farin enda mikilvægt að reyna og þjálfa áhafnir, reiða og skip. Stefnan var tekin á Ísafjörð og lagðist Haukurinn utan á seglskútuna Auroru að morgni laugardagsins og skoðaði fjögurra manna áhöfnin sig svo um í Ísafjarðarbæ fram yfir hádegi eða þar til siglt var yfir til Bolungarvíkur. Í Bolungarvík á Haukur og Norður-Sigling marga góða vini enda var skipið keypt þaðan á sínum tíma. Vel var tekið á móti okkur þar eins og alltaf og slegið upp veislu og boðið á ball. Því miður var okkur ekki til setunnar boðið þar sem spáin var slæm og ljóst að best væri að sigla af stað um miðnættið.

Siglingin frá Bolungarvík fyrir Vestfirðina var ævintýraleg í náttmyrkrinu en í dögun skreið Haukurinn framhjá Látrabjargi og þá undir fullum seglum og með dautt á vél. Hvöss austanátt var á Breiðafirðinum og má segja að þar hafi skipið fengið sína erfiðustu siglingu til þessa. Segl voru rifuð og sigldi Haukurinn ljúflega skáhalt upp í bræluna áleiðis til Ólafsvíkur þar sem komið var að kveldi. Nokkur fjöldi Ólafsvíkinga var mættur á bryggjuna og ráku margir upp stór augu þegar þeir sáu seglskip koma siglandi inn úr brælunni. Móttökurnar voru góðar og fékk Haukurinn að liggja utan á Sveinbirni Jakobssyni, glæsilegum 100 tonna eikarbát.

Í Ólafsvík var landlega vegna brælu og var því mánudeginum eytt í sundferðir, afslöppun og bátaskoðun. Á þriðjudegi var veður svo orðið skaplegt og Haukurinn sigldi af stað seglum þöndum uppúr hádegi, að hluta til með nýja áhöfn. Byr var svo með besta móti þegar komið var fyrir Snæfellsnesið og þegar húmaði var drepið á vél og skipið skreið hljóðlaust inn í myrkrið. Þessi nótt mun seint líða áhafnarmeðlimum úr minni en tilfinningin að vera undir stjörnubjörtum himni og heyra aðeins öldugjálfur, marr í rám og reiða og að sjá ljóshaf siðmenningarinnar í borginni við sundin blá nálgast með 6 mílna hraða er ógleymanleg.

Í Reykjavík dvaldi Haukurinn svo í 8 daga en m.a. var ferðaþjónustuaðilum, fjölmiðlum og almenningi boðið að skoða skipið og þáðu það margir. Fimmtudaginn 28. sept lagði svo Haukurinn af stað til Vestmannaeyja og tók siglinginn þangað eina 18 tíma og þar var áð í sólarhring meðan austan hvassviðri gekk niður við Suðurströndina en langar vegalengdir í hafnleysum þar gera suðurströndina að varasamri siglingaleið. Að morgni laugardagsins var svo haldið úr höfn í Vestmannnaeyjum áleiðis austur. Ferðinni var í raun heitið til Húsavíkur þar sem tímaskortur hrjáði hluta áhafnarinnar og varð það úr að siglt var viðstöðulaust til Húsavíkur þar sem Haukurinn lagðist að bryggju tæpum 50 tímum síðar.

Það er óhætt að segja að þetta hafi verið mikil ævintýraför og ljóst að áhöfn og skip eru reynslunni ríkari en á þessum rúmu þremur vikum lagði Haukurinn að baki 867 sjómílur (1.607km). Áhafnir voru breytilegar en skipstjórinn Einar Magnússon stóð einn manna alla leggina og á hann heiður skilinn fyrir að stýra leiðangrinum með röggsemi og bros á vör.

Annars voru áhafnir sem hér segir:

Húsavík - Siglufjörður ca. 45 sm: Einar Magnússon, Sigurbjörn Sörensson, Þórunn Harðardóttir & Matthias Pelz.
Siglufjörður - Ólafsvík: ca. 230 sm.: Einar Magnússon, Heimir Harðarson, Hörður Sigurbjarnarson, Þórunn Harðardóttir
Ólafsvík - Reykjavík: ca. 90 sm.: Einar Magnússon, Heimir Harðarson & Stefán Gunnarsson.
Reykjavík - Húsavík, ca. 500 sm.: Einar Magnússon, Heimir Harðarson, Nils Bjartur Hailer & Sigríður Ragna Sverrisdóttir.



HH













Áhöfn lokaleggsins, fv. Sigga Ragna, Einar, Nils & Heimir

Viðurkenningar & vottun:

Alþjóðlegar og innlendar viðurkenningar frá 1995Norðursigling er leyfishafi FerðamálastofuNorðursigling er leyfishafi FerðamálastofuNorðursigling er meðlimur í Íslensku hvalaskoðunarsamtökunum


Mynd

  • Náttfari og hnúfubakur


Fánar

In English
  • North Sailing
  • Húsavík Original Whale Watching
  • North Sailing Schooners
  • Gamli Baukur
  • Skuld