Beint á leiðarkerfi vefsins
Norðursigling - Húsavík

Fréttir Norðursiglingar

10. desember 2006

Jóla-Skuld Norður-Siglingar og Heimabakarís


Kaffihúsið Skuld sem stendur í Svartabakka hefur á aðventunni verið jólaljósum og greinum skreytt og nefnist verkefnið sem Heimabakarí og Norður-Sigling standa sameiginlega að Jóla-Skuld.

Bæjarbúar og gestir sem mætt hafa á staðinn hafa tekið þessu framtaki fagnandi enda er þar hægt að gæða sér á ýmsu góðgæti svo sem tertum, piparkökum og brauði. Drykkir eru þar nægir sömuleiðis. Jólaöl fyrir alla aldurshópa er á boðstólnum sem og léttvín, heitir áfengir drykkir, gómsætt heitt súkkulaði og síðast en ekki síst er Skuldarglögg (sænskt jólaglögg) mjög vinsælt.

Eldur logar í útiarni og kyndlum og á síðkvöldum myndast skemmtileg stemmning neðan bakkans en þar er reyndar annað veðrakerfi en annarsstaðar og því nánast alltaf logn.

Á fimmtudaginn sl. fór fram upplestur á nýútkomnum jólabókum og mættu yfir 30 manns og myndaðist mikil stemmning og á döfinni er ýmislegt svo sem Túpílakaheimsókn, Jólasveinar úr Dimmuborgum og fleira.

HH

Opnunartími er sem hér segir:
Mán, þri og mið: 15-21
fim, fös og lau: 15-22
sunnudagar: 12-18


Á boðstólnum er eftirfarandi:
kaffi
te
kaffi latté
swiss mocha
cappucino
heitt súkkulaði
skútu súkkulaði
irish coffee
skuldarglögg
espresso

jólabjór
víking
thule
carlsberg
rauðvín
hvítvín

coke
jólaöl
svali
kókómjólk


smurðar langlokur
smurð rúnstykki
marsípanstykki
niðurskorin lagkaka (hvít og brún)

smákökur:
-piparkökur
-súkkulaðibitakökur
-púpursykurkökur
-spesíur
kleinur
cookies
amerísk súkkulaðikaka
marengs terta




Jólastemmningin fyrir neðan bakkann


Mikil stemmning var á jólaupplestrinum





Viðurkenningar & vottun:

Alþjóðlegar og innlendar viðurkenningar frá 1995Norðursigling er leyfishafi FerðamálastofuNorðursigling er leyfishafi FerðamálastofuNorðursigling er meðlimur í Íslensku hvalaskoðunarsamtökunum


Mynd

  • Náttfari og hnúfubakur


Fánar

In English
  • North Sailing
  • Húsavík Original Whale Watching
  • North Sailing Schooners
  • Gamli Baukur
  • Skuld