Fréttir Norðursiglingar
25. janúar 2007
Norður-Sigling á ferðasýningu í London
útflutningsráð Íslands í fyrsta skiptið á ferðasýningu erlendis.
Útflutningsráð Íslands skipulagði sameiginlega þátttöku sex fyrirtækja á sýningunni Adventure Travel Show sem fór fram í Olympia, London dagana 12.-14. janúar sl. Sýningin, sem haldin var í tólfta skipti, er ein sú stærsta á sviði ævintýraferða í heiminum með u.þ.b. 30 þúsund gesti.
Um 250 fyrirtæki tóku þátt í sýningunni í ár. Þarna voru m.a. fyrirtæki sem sérhæfa sig í gönguferðum í Himalayafjöllum, köfunarskóli í London, flúðasiglingar í Chile og hvalaskoðunarferðir frá Íslandi. Fyrirtækin frá Íslandi voru þessi: Arctic Rafting & Explore! Adventures, Borea Adventures – Iceland, Elding hvalaskoðun, Iceland Nature Break, Iceland Outdoors og Norður-Sigling á Húsavík.
Björgvin Þór Björgvinsson, verkefnisstjóri á sýningasviði Útflutningsráðs segir að þessi þátttaka Útflutningsráðs í ferðasýningum erlendis sé nýjung. „Það kemur til af því að síðustu misseri höfum við hjá Útflutningsráði unnið mikið með ferðaþjónustufyrirtækjum á Íslandi í gegnum markaðsþróunarverkefnin okkar, Hagvöxtur á heimaslóð (HH) og Útflutningsaukning og hagvöxtur (ÚH). Við höfum orðið vör við áhuga á sameiginlegri sýningarþátttöku innan þessa hóps og ákváðum að kanna hvort það væri áhugi hjá ferðaþjónustunni að sækja svona fagsýningu sem varð raunin.“
Íslenska svæðið á Adventure Travel Show vakti talsverða athygli gesta og fulltrúar fyrirtækjanna voru almennt ánægðir með þátttökuna. „Þeim sem komu til okkar á básinn fannst frábært að svona ólík fyrirtæki væru að sýna saman undir hatti Íslands á meðan t.d. norsku fyrirtækin voru dreifð um alla höllina. Íslenski hópurinn sem fór héðan var afar fjölbreyttur, allt frá hvalaskoðunarfyrirtækjum upp í fyrirtæki sem skipuleggja göngu-, jeppa- og ísklifursferðir og var sérlega ánægjulegt að sjá hversu samheldnin var mikil í þessum hópi“, sagði Björgvin Þór um þátttöku íslensku fyrirtækjanna.
„Vonandi verður framhald af samstarfi okkar með ferðaþjónustunni í sýningarhaldi erlendis en hvort þetta sé nákvæmlega sýningin sem við viljum sækja verður framtíðin að leiða í ljós“, sagði Björgvin Þór að lokum.
Myndirnar að neðan eru frá sýningunni.
Fréttin er tekin af síðu Útflutningsráðs.





























