Beint á leiðarkerfi vefsins
Norðursigling - Húsavík

Fréttir Norðursiglingar

2. febrúar 2007

Norður-Sigling blótar Þorrann


Föstudagskvöldið 26. janúar sl. kom Norður-Siglingarfólk saman í Skipasmíðastöðinni og blótaði þorrann. Þar var saman kominn föngulegur hópur vetrar- og sumarstarfsfólks ásamt velunnurum og með mökum voru þetta tæplega 40 manns.

Á boðstólum var hefðbundinn þorramatur sem rann ljúflega ofan í viðstadda undir ýmsum skemmtiatriðum s.s. slides myndasýningu frá liðnu sumri, fjöldasöng en einnig söng Addi lögga súpertenor nokkur lög við mikinn fögnuð viðstaddra. Auk þess spilaði bæjarlistamaðurinn og heiðursmaðurinn Sigurður Hallmarsson nokkur lög á nikkuna.

Það var því skemmtilegt andrúmsloft í Skipó þetta kvöld og gaman að hrista saman Norður-Siglingarhópinn.

ÞH



Hörður afgreiðir kaftein Hrólf á barnum


Kræsingarnar bornar fram






Kapteinn Hreiðar ánægður með framboðið


Fríður og föngulegur hópur saman kominn í Skipasmíðastöðinni

Viðurkenningar & vottun:

Alþjóðlegar og innlendar viðurkenningar frá 1995Norðursigling er leyfishafi FerðamálastofuNorðursigling er meðlimur í Íslensku hvalaskoðunarsamtökunumSkráð gæðavottun frá Lloyds


Mynd

  • Náttfari að halda sér

Fánar

In English
  • North Sailing
  • Húsavík Original Whale Watching
  • North Sailing Schooners
  • Gamli Baukur
  • Skuld