Beint á leiðarkerfi vefsins
Norðursigling - Húsavík

Fréttir Norðursiglingar

13. apríl 2007

Starfsfólk Norður-Siglingar í óða önn að undirbúa 13. sumarið


Það er að mörgu að hyggja áður en vertíðin hefst og starfsfólk Norður-Siglingar er nú í óða önn að undirbúa 13. sumar fyrirtækisins í hvalaskoðun. Sem stendur er verið að huga að ástandi bátanna og í dag var Bjössi Sör tekinn niður úr slipp og Náttfari tekinn upp. Meðfylgjandi myndir tók Þórunn Harðardóttir af Bjössa Sör í slippnum.

Fyrsta brottför sumarsins verður 20. apríl kl. 13:30 og út apríl verða daglegar brottfarir á sama tíma. Nánari upplýsingar um ferðir, áætlun og fleira er hægt að nálgast með því að senda tölvupósti á netfangið info@nordursigling.is eða í síma 464 7272

HSH



Bjössi Sör í Húsavíkurslipp


Verið að mála botninn

Viðurkenningar & vottun:

Alþjóðlegar og innlendar viðurkenningar frá 1995Norðursigling er leyfishafi FerðamálastofuNorðursigling er leyfishafi FerðamálastofuNorðursigling er meðlimur í Íslensku hvalaskoðunarsamtökunum


Mynd

  • Náttfari og hnúfubakur


Fánar

In English
  • North Sailing
  • Húsavík Original Whale Watching
  • North Sailing Schooners
  • Gamli Baukur
  • Skuld