Beint á leiðarkerfi vefsins
Norðursigling - Húsavík

Fréttir Norðursiglingar

30. maí 2007

Fyrsta kvöldferð sumarsins


Fyrsta kvöldferð sumarsins á Skjálfanda fór vel fram og sáust 2 hnúfubakar í kvöldsólinni sem var mjög gott þar sem ekki hafði sést hnúfubakur síðan á sunnudaginn síðasta.

Ekki létu leiðsögumaðurinn Nils og skipperinn Hreiðar þetta nægja því í hafnarkjaftinum fundu þeir 6 höfrunga sem léku við bátinn um stund.

Nú á föstudaginn byrjar svo Júní-áætlunin með föstum kvöldferðum en þá verða farnar 4 ferðir á dag eða:
10:00
13:30
17:00
20:15

HH



Hnúfubakur í kvöldsólinni og Kinnarfjöllin skarta sínu fegursta enn í vetrarbúningi.

Viðurkenningar & vottun:

Alþjóðlegar og innlendar viðurkenningar frá 1995Norðursigling er leyfishafi FerðamálastofuNorðursigling er leyfishafi FerðamálastofuNorðursigling er meðlimur í Íslensku hvalaskoðunarsamtökunum


Mynd

  • Náttfari og hnúfubakur


Fánar

In English
  • North Sailing
  • Húsavík Original Whale Watching
  • North Sailing Schooners
  • Gamli Baukur
  • Skuld