Beint á leiðarkerfi vefsins
Norðursigling - Húsavík

Fréttir Norðursiglingar

2. júní 2007

Sjómenn, til hamingju með daginn!


Dagskrá Sjómannadagsins sem að fer að venju fram á laugardeginum fór fram í blíðskaparveðri og miklum hita á Húsavík í dag.

Norður-Sigling sendi að venju Náttfara í skemmtisiglinguna en því miður komust færri að en vildu þar sem Bjössi Sör var upptekinn í hvalaskoðun og Knörrinn og Haukur rétt ókomnir með haffæri.

Hrólfur Þórhallsson skipstjóri Náttfara gerði sér svo lítið fyrir og sýndi rúmlega 100 farþegum Náttfara tvo hnúfubaka rétt við bátinn og fóru allir glaðir í land eftir um klukkutíma skemmtisiglingu í blíðunni.

HH



Náttfari og Þórsnesið sem er í eigu GPG fiskverkunar á Húsavík á siglingu
Mynd: Hafþór Hreiðarsson - www.123.is/skipamyndir


Náttfari á útstími
Mynd: Hafþór Hreiðarsson - www.123.is/skipamyndir


Tveir hnúfubakar léku svo listir sínar fyrir sjómannadagssiglingargesti

Viðurkenningar & vottun:

Alþjóðlegar og innlendar viðurkenningar frá 1995Norðursigling er leyfishafi FerðamálastofuNorðursigling er leyfishafi FerðamálastofuNorðursigling er meðlimur í Íslensku hvalaskoðunarsamtökunum


Mynd

  • Náttfari og hnúfubakur


Fánar

In English
  • North Sailing
  • Húsavík Original Whale Watching
  • North Sailing Schooners
  • Gamli Baukur
  • Skuld