Fréttir Norðursiglingar
13. júní 2007
RÚV gerir það gott á miðunum
Í gærkvöld syntu sem endranær steypireyðar og hnúfubakar um Skjálfandaflóa og böðuðu sig í geislum kvöldsólarinnar. RÚV, eða öllu heldur Hilda Jana fréttakona og Jóhann myndatökumaður fengu að fljóta með Norðursiglurunum Heimi og Hilmari út á flóann á skonnortunni Hauk... í ævintýraleit.
Leitin bar árangur og stórgóðar myndir náðust af stærsta dýri veraldar, steypireyðinni þar sem hún synti í kringum skútuna sem flaut hljóðlaus um á spegilsléttum sjónum.
Meira síðar...
HH






























