Beint á leiðarkerfi vefsins
Norðursigling - Húsavík

Fréttir Norðursiglingar

11. ágúst 2007

Björgunarsveitin Garðar æfir með Norður-Siglingu


Mikilvægt er að hafa góða björgunarsveit á stað eins og Húsavík og ekki síst í seinni tíð þegar ferðir með farþega á sjó eru orðnar fleiri en víðast hvar annarsstaðar á landinu.

Norður-Sigling leggur áherslu á að vinna þétt með þeim í Björgunarsveitinni Garðari og var æfing haldin nú á dögunum í þeim tilgangi að samhæfa neyðarviðbrögð.

Sjúkrabörum var komið fyrir í einum hvalaskoðunarbátanna og æfði áhöfn Jóns Kjartanssonar það að koma lækni og sjúkraflutningamönnum um borð á fullri ferð og koma svo "sjúklingnum" frá borði niður í björgunarsveitarbátinn.

Æfingarnar tókust mjög vel og vonandi verða haldnar fleiri æfingar áður en langt um líður.

HH



Sjúkraflutningamenn og björgunarsveitarmeðlimir komnir um borð í Bjössa Sör til að undirbúa æfinguna.


Jón Kjartansson á ferðinni.


Glaðbeittir björgunarsveitarmenn koma að skipshlið enda sem betur fer einungis um æfingu að ræða.

Viðurkenningar & vottun:

Alþjóðlegar og innlendar viðurkenningar frá 1995Norðursigling er leyfishafi FerðamálastofuNorðursigling er leyfishafi FerðamálastofuNorðursigling er meðlimur í Íslensku hvalaskoðunarsamtökunum


Mynd

  • Náttfari og hnúfubakur


Fánar

In English
  • North Sailing
  • Húsavík Original Whale Watching
  • North Sailing Schooners
  • Gamli Baukur
  • Skuld