Fréttir Norðursiglingar
14. ágúst 2007
Fulltrúar Norður-Siglingar á Risør Trebåtfestival
Um síðustu helgi sendi Norður-Sigling góða fulltrúa á hina árlegu Trébátasýningu í Risør í Noregi. Tvisvar áður hefur fyrirtækið gert menn útaf örkinni á þessa sýningu m.a. til að kynna sér fallega trébáta, lökk olíur og görótta myði til margvíslegra nota. Í öll skiptin hefur Kristinn nokkur Guðlaugsson tekið að sér að vera farastjóri og var svo einnig nú.
Í þetta sinn voru það Hrólfur Þórhallsson, Hreiðar Olgeirsson og Sigurbjörn Sörensson sem flugu á vit ævintýranna en Bjössi Sör sem sá síðastnefndi er oftast kallaður er einmitt tengdafaðir Kristins Guðlaugssonar. Aðstoðarleiðsögumaður var svo Haukur Kristinsson Guðlaugssonar.
Það var að heyra á ferðalöngunum við komuna aftur til landsins að ferðin hafi verið í alla staði frábær og að þrátt fyrir allt megi ýmislegt læra af Norðmönnum.
HH

Það var margt að skoða fyrir fróðleiks þyrsta ferðalanga úr norðri.

Jafnan heimsækja sýninguna hundruðir seglbáta og klassískra trébáta á ári hverju og er mikið um dýrðir.

Víða í Skandinavíu er mikið lagt í að hafa báta í sem bestu ástandi og hvergi til sparað í smáatriðunum.

Hrólfur og Bjössi Sör gáfu sig á tal við þessa myndarlegu snót sem reyndist svo vera stafnlíkneski.

Stund milli stríða hjá Þingeyingunum þremur.

Bjössi Sör á tali við Tove Werner um borð í Hrímfaxa, skútu Werner fjölskyldunnar. Tove er móðir Line Werner og tengdamóðir Árna Sigurbjarnarsonar eigenda Norður-Siglingar en Per Werner sem lést fyrir skömmu á mikinn heiður á hvernig til hefur tekist við breytingarnar á bátum Norður-Siglingar allt frá upphafi þar sem hann teiknaði og hannaði þær á stofu sinni í Noregi. Það er óhætt að segja að skonnorta Norður-Siglingar, Haukurinn, væri ekki það sem hann væri í dag ef Per hefði ekki komið að hönnun reiða og annars búnaðar en hann bjó yfir mikilli þekkingu og innsýn í siglingaheiminn.



























