Fréttir Norðursiglingar
23. ágúst 2007
Haukur á Íslandsmóti í siglingum
Íslandsmótið í siglingum var haldið með glæsibrag við Akureyri um síðastliðna helgi. Alls voru 38 keppendur mættir til leiks en rúmlega helmingur þeirra kom frá siglingaklúbbnum Nökkva á Akureyri, eða 22 keppendur. Seglskipið Haukur, sem er í eigu Norður-Siglingar, var sérstakur heiðursgestur á mótinu.
Á laugardeginum buðu siglingaklúbburinn Nökkvi og Norður-Sigling öllum krökkum sem sótt höfðu námkeið Nökkva, ásamt foreldrum í stutta siglingu á Hauknum til að fylgjast með mótinu.
Síðar um kvöldið var verðlaunaafhending fyrir sjálft mótið haldin um borð í Hauknum og tóku hátt í 70 manns, keppendur og foreldrar, þátt í glæsilegri athöfn á Pollinum undir seglum. Nökkvamenn sögðu að sjaldan eða aldrei hafi svo mörg segl verið á Pollinum í einu, en skútueigendur á Akureyri undu upp segl og sigldu með Hauknum til heiðurs keppendum svo úr var mikil seglaveisla þennan dag.
Meðfylgjandi myndir voru teknar af Hildi Haraðdóttur, sem var í áhöfn á Hauknum og Rúnari Þór Björnssyni, formanni siglingaklúbbsins Nökkva.
HVG

Glaðbeittur hópur barna og foreldra þeirra á leið í skemmtisiglingu.

Haukurinn siglir um Pollinn innan um keppendur.

Haukurinn með þrjú segl uppi af sex, fokku, skonnortusegl og skonnortutopp.

Rúnar Þór Björnsson, formaður siglingaklúbbsins Nökkva að veita sigurvegurum keppninnar verðlaun.


Foreldrar um borð í Hauknum fylgjast spenntir með börnum sínum sigla.



























