Fréttir Norðursiglingar
15. september 2007
Háhyrningar í flóanum!
Eftir norðanbrælu síðustu daga má segja að heimsókn háhyrninga í flóann sé kærkominn glaðningur. Þessir tignarlegu hvalir eru fremur sjaldséðir við norðurströnd Íslands en eiga það þó til að sýna sig hér á Skjálfanda og sjást þeir yfirleitt í litlum hópum/vöðum.
Það voru þau Hrólfur Þórhallsson og Hildur Harðardóttir, áhöfn Bjössa Sör, sem fundu hópinn í morgun.
Myndir: Sebastian Svenberg og Martin Varga.
Huld H.

Háhyrningur á Skjálfanda.

Tignarlegar skepnur.

Lítill hópur




























