Beint á leiðarkerfi vefsins
Norðursigling - Húsavík

Fréttir Norðursiglingar

9. nóvember 2007

NORÐURSIGLING, HÚSAVÍK hlýtur nýsköpunarverðlaun SAF


Nýsköpunarverðlaun SAF – Samtaka ferðaþjónustunnar voru afhent nú í fjórða sinn við athöfn á Hilton Reykjavík Nordica í dag,. Hvalaskoðunarfyrirtækið Norðursigling, Húsavík hlaut verðlaunin að þessu sinni en Norðursigling hefur með sterkri stjórn, skýrri sýn og fórnfúsu starfi stuðlað að uppbyggingu ferðaþjónustu á landsbyggðinni á eftirbreytniverðan hátt.

Í rökstuðningi dómnefndar segir að einkum hafi þrennt legið til grundvallar ákvörðun dómnefndar:

• Norðursigling, sem nú hefur starfað í 13 sumur, hefur frá upphafi staðið fyrir samfelldri nýsköpun og vöruþróun í þeirri viðleitni fyrirtækisins að gera hvalaskoðun að eftirsóknarverðri afþreyingu á Íslandi. Stefna fyrirtækisins er mörkuð hugsjón og virðingu fyrir sögu strandmenningar á landinu, eins og uppbygging skipakosts fyrirtækisins og aðstöðu við höfnina á Húsavík ber með sér, sem og aðkoma að Húsavíkurhátíð.

• Norðursigling hefur sýnt og sannað að með réttri hugmynd, markaðri stefnu og elju við útfærslu hennar má skapa ákveðnum stað á landsbyggðinni slíka ímynd og nafn meðal ferðamanna, að nauðsynlegt þyki að sækja hann heim.

• Samfélagsleg áhrif Norðursiglingar eru veruleg og með starfsemi sinni hefur fyrirtækið stuðlað að uppbyggingu sterks og arðbærs ferðaþjónustukjarna á Húsavík, sem fjöldi fólks hefur atvinnu af. Sjá nánar www.nordursigling.is



Hlutverk Nýsköpunarsjóðs er að hvetja til nýsköpunar og vöruþróunar. Stjórn sjóðsins skipa: Jón Karl Ólafsson, formaður SAF, Edward Huijbens, forstöðumaður Ferðamálaseturs, og Jón Baldur Þorbjörnsson, eigandi ferðaskrifstofunnar Ísafold. Í stefnumótun SAF kemur m.a. fram að stefnt skuli að því að nýsköpun og fagmennska innan greinarinnar tryggi arðsemi allt árið enda byggi ferðaþjónustan á ímynd, gæðum, þekkingu og traustum innviðum. Auk þess segir að landið allt verði kynnt til eflingar ferðaþjónustu og að náttúra, mannlíf og menning landsins gegni lykilhlutverki. Hvatt er til aukinnar samvinnu innan greinarinnar til að styrkja enn frekar innviði og efla markaðssetningu landsins sem heildar. Stjórn sjóðsins tekur tillit til þessara þátta við val sitt.



Fréttin er tekin af www.saf.is



Kristján Möller afhendir Herði Sigurbjarnarsyni verðlaunin. Jón Baldur Þorbjörnsson úr dómnefnd og Erna Hauksdóttir hjá SAF fylgjast með.

Viðurkenningar & vottun:

Alþjóðlegar og innlendar viðurkenningar frá 1995Norðursigling er leyfishafi FerðamálastofuNorðursigling er leyfishafi FerðamálastofuNorðursigling er meðlimur í Íslensku hvalaskoðunarsamtökunum


Mynd

  • Náttfari og hnúfubakur


Fánar

In English
  • North Sailing
  • Húsavík Original Whale Watching
  • North Sailing Schooners
  • Gamli Baukur
  • Skuld