Beint á leiðarkerfi vefsins
Norðursigling - Húsavík

Fréttir Norðursiglingar

26. október 2006

Yfirlýsing vegna hvalveiða Íslendinga


Í ljósi ákvörðunar sjávarútvegsráðherra, Einars K. Guðfinnssonar, að leyfa hvalveiðar í atvinnuskyni telur Norður-Sigling mikilvægt að eftirfarandi komi fram:

4. október 2006

Haukur lýkur hringferð sinni um Ísland


Fyrir hádegi á mánudaginn síðastliðinn leið skonnortan Haukur inn í Húsavíkurhöfn með öll segl uppi og dautt á vél og lagðist þannig að bryggju eftir viðburðarríka hringferð í kringum landið.

Upphaflega var áætlað að vera með Haukinn á Vestnorden ferðasýningunni í Reykjavík þann 11-13. september sl. og sigla svo til Færeyja en skipið lagði úr höfn á Húsavík föstudaginn 8. september. Vonskuveður við Vestfirði hamlaði för og var Haukur skilinn eftir á Siglufirði og fór því Norður-Sigling skonnortulaus á Vestnorden að þessu sinni.

3. október 2006

Efstu bekkir Borgarhólsskóla sigla í Flatey


Nú má segja að það sé orðin hefð við Borgarhólsskóla að sigla með unglingadeildir að hausti á bátum Norðursiglingar um Skjálfandaflóa. Í haust var siglt þriðjudaginn 3. október. Fyrst var siglt haustið 2003 og þá út í Flatey. 2004 var farið í Naustavík og 2005 var siglt út með Tjörnesi. Núna var aftur siglt út í Flatey. Ætlunin er að halda þessu ferðaplani þannig að þeir sem brautskrást frá Borgarhólsskóla séu a.m.k. þrísigldir á Skjálfanda.

1. október 2006

Haukur nálgast Húsavík

Þegar þetta er skrifað er skonnortan Haukur á siglingu skammt undan Breiðdalsvík fyrir austan land og styttist því í að hringferðinni ljúki.

Haukur lagði frá bryggju á Húsavík 8. september sl. í hringferð kringum landið og hafa viðkomustaðir verið nokkrir, m.a. Siglufjörður, Ísafjörður, Bolungarvík, Ólafsvík, Reykjavík og Vestmannaeyjar.

Áætluð koma til Húsavíkur er um hádegisbil á morgun (mánudag 2. okt.).
Nánari ferðasaga og myndir verða birtar hér á vefnum innan skamms

ÞH

Viðurkenningar & vottun:

Alþjóðlegar og innlendar viðurkenningar frá 1995Norðursigling er leyfishafi FerðamálastofuNorðursigling er leyfishafi FerðamálastofuNorðursigling er meðlimur í Íslensku hvalaskoðunarsamtökunum


Mynd

  • Náttfari og hnúfubakur


Fánar

In English
  • North Sailing
  • Húsavík Original Whale Watching
  • North Sailing Schooners
  • Gamli Baukur
  • Skuld