Fréttir Norðursiglingar
29. júní 2005
Norður-Sigling og Hvalasafnið í óvissuferð
Á mánudagskvöldið fór hluti starfsfólks Norður-Siglingar og Hvalasafnsins í óvissuferð um Skjálfanda.
Siglt var út að Lundey á Hauknum og ankeri kastað við eyjuna. Þvínæst var liðið ferjað á gúmmíbátum upp í eyjuna og hún klifin. Gengið var norður að vita þar sem menn sleiktu sólskinið um stund og nutu útsýnisins yfir spegilsléttan Skjálfandann.
26. júní 2005
Landnámsferð í Náttfaravíkur
Nú er fyrstu Sænsku dögunum senn lokið og má segja að einn af hápunktunum af dagskránni hafi verið svokölluð Landnámsferð í Náttfaravíkur í gærkvöld.
Það voru Norður-Sigling og veitingahúsið Salka sem buðu um 70 manns að sigla á seglskipinu Hauk og Náttfara vestur í Náttfaravíkur þar sem beið þeirra í Rauðuvík glæsileg grillveisla og varðeldur.
25. júní 2005
Sandreyður á Hvalahátíð
Hin árlega Hvalahátíð var haldin á Húsavík um helgina. Samanstóð dagskráin af ýmsum uppákomum en á Föstudeginum stóð Hvalasafnsfólkið fyrir því að gera hval úr sandi í Suðurfjöru. Hvalurinn er í hlutföllum stærstu Steypireyðar sem vitað er um eða um 33 metrar á lengd og um 190 tonn.
23. júní 2005
Lífróður
Nú í kvöld kom Kjartan Hauksson á árabáti sínum Frelsi til Húsavíkur. Hann stefnir að því að róa umhverfis landið á næstu 7-8 vikum en vegalengdin er u.þ.b. 3000 km.
23. júní 2005
Líflegt við Húsavíkurhöfn

Þegar sólin fór að skína eftir kuldakast s.l. viku lifnaði bærinn við og mikið er um að vera á Hafnarstéttinni. Í dag voru farnar 3 aukaferðir í hvalskoðun í viðbót við venjubunda áætlun og um 360 manns á vegum Norður-Siglingar hafa því siglt á lygnum flóanum í dag.
22. júní 2005
Risjótt tíðarfar en töluvert af hval
Þótt veðrið hafi ekki leikið við Húsvíkinga og gesti þeirra undanfarið hefur hvalur verið með meira móti og allt að 4 hnúfubakar og nokkrar hrefnur, auk minni tegunda sést á flóanum. Ágætis aðsókn útlendinga hefur verið þrátt fyrir kuldann en Íslendingar halda sig til hlés þegar blæs að norðan.
18. júní 2005
Brjálað að gera

Sjaldan eða aldrei hefur annríki verið meira hjá Norður-Siglingarliðinu en einmitt núna, því auk hinnar "hefðbundnu" útgerðar er ýmislegt annað í pípunum svo sem bygging á nýju 120 fermetra þjónustuhúsi og uppgerð gamalla húsa.
16. júní 2005
Fjöldi brúðhjóna í ferðum Norður-Siglingar

Það virðist vera að Ísland sé í tísku sem “brúðkaupsferðaland” um þessar mundir. Síðastliðnar tvær vikur hefur Norður-Sigling tekið á móti fjórum brúðhjónum og eru mörg fleiri bókuð í sumar.
16. júní 2005
Sigling um Eyjafjörð

Í síðustu viku lögðu starfsmenn Norður-Siglingar upp í ferð til Eyjafjarðar, nánar tiltekið Dalvíkur, þar sem hópur ferðamanna var sóttur. Hópurinn samanstóð af 50 söluhæstu starfsmönnun austurrísks tryggingafyrirtækis sem boðið var til Íslands af fyrirtækinu í þakklæti fyrir vel unnin störf.
16. júní 2005
Skútur í Húsavíkurhöfn

Húsavíkurhöfn orðin afar vinsæll viðkomustaður fyrir skútur innlendar sem erlendar.
14. júní 2005
Líflegt á flóanum

Mikið líf hefur verið á flóanum síðastliðan daga og dæmi um að hnúfubakar, hrefnur, hnísur og höfrungar sjáist í sömu ferðinni.
5. júní 2005
Sjómannadagurinn á Húsavík
Sjómannadagurinn er haldinn hátíðlegur á Húsavík sem og öðrum sjávarplássum á Íslandi. Hluti af dagskrá dagsins hefur lengi verið að skemmtisigling er farinn um Skjálfandaflóa með þá sem vilja, en reyndar yfirleitt á laugardeginum, þar sem mest af skipulagðri dagskrá fer fram.



























