Sérsniðnar ferðir
Norðursigling getur sérsniðið ferðir eftir þörfum hvers og eins. Hvataferðir fyrir starfsmannafélög eða skemmtiferðir fyrir vinahópa og fjölskyldur, möguleikarnir eru fjölmargir. Hægt er að leigja bátana til lengri eða skemmri tíma.
Eftirfarandi eru hugmyndir að sérsniðnum ferðum.
Grímsey - Heimskautsbaugur
Siglt frá Húsavík til Grímseyjar og litið við á þessari norðlægu eyju þar sem heimskautsbaugur liggur.
Flatey „Liðnir tímar“
Flatey á Skjálfanda var í byggð til 1968 en þar ríkir andi gamalla tíma því mörg húsanna standa enn og er haldið við. Flatey er sannkölluð náttúruperla og fuglalíf þar geysilega fjölskrúðugt.
Sjóstangveiði
Norðursigling getur tekið á móti stórum sem smáum hópum í sjóstangveiði.
Grillferðir
Norðursigling býður upp á ýmsa möguleika varðandi grillferðir, bæði er hægt að grilla um borð eða fara í land á völdum stöðum.
Giftingar og önnur tilefni
Sigling og heimsókn á einangraða staði getur gert sérstök tilefni enn minnistæðari.




























