Hvalir, lundar og segl NS-2
Hér er boðið upp á einstaka siglingu, um borð í annarri af tveimur skonnortum Íslands, Hauki eða Hildi, sem samtvinnar hvalaskoðun, fuglaskoðun og ævintýrasiglingu. Um borð má upplifa anda liðinna tíma og taka þátt í að hífa upp segl eða aðstoða skipstjórann við að stýra skipinu. Auk hefðbundinnar hvalaskoðunar er siglt upp að Lundey, þar sem farþegum gefst kostur á að skoða tugþúsundir lunda sem búa í eyjunni yfir sumarmánuðina.
Bóka ferð
Lengd
- Um það bil 4 klukkustundir
Hressing
- Heitt kakó, snúður og gott í kroppinn
Leiðsögn
- Leiðsögumaður með víðtæka þekkingu á hvölum, fuglum og siglingareynslu
Aukafatnaður
- Sérstakir siglingagallar fyrir alla um borð - innifalið í verði
Verð 2012
- 15. maí - 15. júlí:
Fullorðnir:
11.200 kr. / 68 evrur
Yngri en 15 ára:
5.580 kr. / 34 evrur - 16. júlí - 20. ágúst:
Fullorðnir:
12.200 kr. / 74 evrur
Yngri en 15 ára:
6.100 kr. / 37 evrur



























