Grænland NSE-2
Þessi ferð er einstakt tækifæri til þess að upplifa ótrúlegan ævintýraheim austurstrandar Grænlands um borð í skonnortunni Hildi. Risafjörðurinn Scoresbysund teygir sig 350 km inn í landið og er fullkominn vettvangur til landkönnunar á þessu fjarlæga og afskekkta svæði. Margir litlir firðir ganga inn frá hinum stóra þar sem alger kyrrð ríkir, sumir þeirra eru eins og mikil gljúfur þar sem 3000 m þverhníptir klettar gnæfa yfir. Óviðjafnanleg náttúra sem lætur engan ósnortinn.
Ferðaáætlun
Dagur 1 (laugardagur)
Flogið frá Reykjavík til Constable Pynt sem er lítill flugvöllur á vestanferðum Hurry firði í Jameson Land. Það er stigið um borð í Hildi og siglt í vestur milli stórkostlegra ísjaka sem hafa brotnað frá meginísnum og reka niður Hall Basin skipaskurðinn. Varpað akkerum við Hekla Havn, náttúrulegri höfn á litlu eyjunni Danmarks Ö sem er gamalt landnám inúíta en þar voru einnig vetrarbúðir fyrsta vísindalega könnunarleiðangursins í Scoresbysundi fyrir rúmri öld.
Dagur 2 (sunnudagur)
Hekla Havn og næsta umhverfi hennar kannað. Siglt vestur hinn þrönga Føhnfjord til Ankervig með mikilfengleg basalt fjöll Gåselands á bakborða og 2000 metra háa graníthamra á stjórnborða. Þegar tekur að nálgast Rode Ö er beygt inn í Ankervig flóa þar sem akkerum er varpað. Við tekur 1-2 tíma auðveld ganga.
Dagur 3 (mánudagur)
Klifið upp fjallshrygg upp af Ankervig sem veitir fína sýn yfir litrík líparítfjöll og auk þess glæsilegt útsýni yfir ýmis fjöll og tinda, eldfjallasýn á aðra hönd en granítsýn á hina. Þeir sem vilja rólegri morgunstund geta annað hvort notið tímans niður við sjó eða gengið í Hjörnedal, brattan dal sem gengur inn í Gåseland frá Ankervig. Þetta svæði er eitt hið gróskumesta á allri austurstöndinni enda loftslagið þar svo til stöðugt allt sumarið. Þangað fara innfæddir til þess að veiða sauðnaut og silung.
Eftir hressandi morgungöngu er siglt norður Rauðafjörð með rauða eldfjallasýn í suðurhluta fjarðarins. Komið til Harefjörð síðdegis og akkerum varpað. Við tekur 3-4 tíma ganga og um kvöldið er slegið upp varðeldi og grillað á grýttri ströndinni.
Dagur 4 (þriðjudagur)
Farið í land í Harefirði og njósnað um sauðnautin sem jafnan eru á beit í brekkunum sem snúa að suðri. Þar er létt ganga upp á topp fjallhryggsins sem liggur milli Harefjarðar og Rypefjarðar en útsýnið þaðan yfir Renland og ísinn og jökultungurnar sem teygja sig niður að sjó er ólýsanlegt. Allt að 6 klukkutstunda ganga (þeir sem kjósa minni áreynslu geta gengið meðfram ströndinni eða verið um borð að njóta útsýnisins).
Dagur 5 (miðvikudagur)
Áfram er siglt, en í þetta skipti austur hinn ógnarlega Öfjörð. Þetta er einhver mikilfenglegasti hluti ferðarinnar. Ótrúlegir fjallstindar og granítveggir rísa 200 m upp af haffletinum líkt og Cerro Torre (eitt af hinum mikilfenglegu fjöllum í Suður Patagóníu-jöklinum í Suður Ameríku) og Fitzroy áin (í Queensland, Ástralíu) hafi verði teflt saman við Heimskautið! Sannkölluð stórveisla fyrir augað. Komið til Bjarnareyjar seint síðdegis og akkerum varpað við Jyttes Havn.
Dagur 6 (þriðjudagur)
Eftir frekar stutt stopp á Bjarnareyum er lagt af stað snemma morguns yfir Hall Basin til þorpsins Ittoqqortoormiit.
Dagur 7 (föstudagur)
Heimsókn í þorpið Ittoqqortoormiit sem var stofnað árið 1925 af fólki frá Ammassalik og er nyrsta byggð á austurströnd Grænlands. Íbúar eru 500 talsins og byggja afkomu sína að mestu á veiðum á selum, náhvölum, sauðnautum og ísbjörnum. Litlu sérkennilegu húsin standa á grýttum hlíðum Suður-Liverpool lands með óviðjafnanlegt útsýni yfir Kap Brewster og Volquart Boons ströndina í suður. Þarna er tækifæri til að heimsækja verslun þorpsins sem selur heimagerða minjagripi úr beinum, sápusteinum og skinni.
Dagur 8 (laugardagur)
Siglt til Constable Pynt, farið frá borði og flogið aftur til Reykjavíkur.
Brottfarir 2012
- 11. ágúst - 18. ágúst
(UPPSELT) - 18. ágúst - 25. ágúst
(1 sæti laust) - 25. ágúst - 1. september
(3 sæti laus) - 1. september - 8. september
(7 sæti laus)
Athugið: Hámark 12 manns í hverja ferð.
Bókanir og fyrispurnir
Vegna flugáætlana, verðs og frekari upplýsinga vinsamlega hafið samband:
- Birna Lind Björnsdóttir, sölu- og markaðsstjóri
- Tölvupóstur: birna@northsailing.is
Leiðsögn
- Leiðsögumaður með víðtæka þekkingu á náttúru og lífríki Grænlands sem og siglingareynslu.
Lengd
- 7 dagar
Innifalið
- Flugfar Reykjavík - Constable Point - Reykjavík.
- Ferðin frá flugvellinum að höfninni í Constable Point.
- Gisting í uppábúnum kojum/rúmum með sameiginlegri aðstöðu um borð í skonnortunni Hildi.
- Allar máltíðir um borð.
- Gosdrykkir, þjónusta áhafnar, gönguferðir (samkvæmt ferðaskipulagi) og öll ferðatilhögun.
- 1 kvöldmáltíð í Ittoqqortoormiit (á föstudegi).
Ekki innifalið
- Flugferð til og frá Íslandi.
- Vegabréfsáritanir og persónulegar ferðatryggingar.
- Gjald fyrir aukafarangur.
- Þvottagjald eða önnur persónuleg kaup.
- Áfengir drykkir (í boði gegn gjaldi sem skal borgað við brottför).
- Valfrjáls 4-5 klst. gönguferð frá Ittoqqortoormiit með innfæddum leiðsögumanni (föstudagur).
- Hádegisverður í Ittoqqortoormiit (föstudagur) – ef gönguferð er ekki keypt.
- Valfrjálsar ferðir á Íslandi fyrir og eftir þessa ferð.



























