Frá toppi til sjávar NSE-3
Þessi einstaka skíðasigling er skipulögð í samstafi við Bergmenn fjallaleiðsögumenn.
Siglt verður á annarri skonnortu Norðusiglingar og tindar, dalir og firðir Huldulandsins svokallaða kannaðir en það er hinn hálendi skagi milli Eyjafjarðar og Skjálfandaflóa.
Á veturna og vorin eru engir vegir færir að þessu svæði og því er eina leiðin að svæðinu frá sjó. Svæðið er ótrúlegur leikvöllur, með tinda sem rísa yfir 1000 metra og nægan snjó. Hvern dag er farið í land í litlum víkum meðfram norðurhluta fjallshryggsins og skíðað niður ótroðnar slóðir og enginn nema eiginn skuggi fylgir okkur sem og hin einstaka miðnætursól sem aldrei sest. Á kvöldin má njóta góðra stunda og matar um borð í hinu fljótandi hóteli sem liggur við akkeri í afskekktri vík eða við bryggju í Flatey á Skjálfanda. Að lokum er siglt til Grímseyjar og farið yfir norðurheimskautsbaug. Þorpið í Grímsey sem er nyrsta byggða ból á Íslandi verður heimsótt og siglt meðfram strönd eyjarinnar. Þessi ferð er einstakt ævintýri fyrir þá sem vilja víkka sjóndeildarhringinn og upplifa ævintýri sem aldrei fyrr.
Sjá myndir úr þessari ferð frá Bergmenn
Hvað gerir þessa ferð svona sérstaka?
- Að sigla og dvelja um borð í fagurlega uppgerðri skonnortu Norðursiglingar.
- Að kanna svæði sem enginn hefur skíðað um áður í félagsskap eina fyrirtækisins á Íslandi með löggilta skíðaleiðsögumenn.
- Að heimsækja eyjarnar Flatey og Grímsey, hvor um sig er einstök á sinn hátt.
- Að sigla yfir norðurheimskautsbaug
- Að heimsækja Huldulandið, sögufrægt svæði með einstakri nátturu sem er eingöngu aðgengileg frá sjó.
- Að sameina skíðaferðir á heimsmælikvarða við hvalaskoðun, fiskveiðar og skemmtilegar stundir með góðum vinum.
Dæmigerð dagskrá fyrir þessa ævintýraferð
1. dagur
Farþegar sóttir á Akureyri snemma morguns og ekið í klukkustund til Húsavíkur þar sem áhöfn skonnortunnar tekur á móti ferðalöngum. Eftir öryggisfræðslu frá skipstjóra er siglt yfir Skjálfandaflóa fyrir fyrstu skíðaferðina. Eftir spennandi kilfur og nokkrar frábærar bunur er haldið í hið fljótandi hótel og siglt til Flateyjar og nóttinni eytt við bryggju þar.
2. og 3. dagur
Landkönnun og ævintýri leika lykilhlutverk um leið og farið er um norðurtá Huldulandsins, skíðað niður lengstu brekkurnar og fjörið sett í fyrirrúm. Möguleikarnir á hressandi niðurferðum fyrir skíðamenn af öllum stigum eru óþrjótandi í þessari fjallaparadís. Á hverjum morgni er land tekið í nýrri vík þar sem yfirgefnir bóndabæir og rústir má sjá hér og hvar. Það er með ólíkindum að ímynda sér að aðeins hundrað árum fyrr hafi svæðið iðað af lífinu sem fylgir landbúnaði og sjávarútvegi en hið eina sem nú stendur eftir séu nokkrir veggir að hruni komnir og útlínur skurða og engja.
4. dagur
Eftir annan mikinn skíðadag er möguleiki að leggja upp í siglingu til Grímseyjar þar sem norðurheimskautsbaugur bíður. Að honum frátöldum er Grímsey einstakur menningarútvörður og nyrsta íslenska byggðin. Náttúru- og fuglalíf er eyjarinnar er engu líkt auk þess sem þar gefast frábær tækifæri til þess að bragða á brakandi ferskum fiski og dýfa tánum í nyrstu sundlaug Íslands.
5. dagur
Eftir könnunarleiðangur í Grímsey um morguninn verður haldið hraðnámskeið í siglingum og meðhöndlun reipa af áhöfn skonnortunnar en síðan haldið af stað aftur til Íslands. Leiðin er nýtt til þess að læra helstu tökin um borð og ef vindur er hagstæður er hægt að drepa á vélum og njóta þess að svífa hljóðlega seglum þöndum um Norður-Atlantshaf. Síðdegis er áætluð koma að bryggju á Húsavík þar sem rúta bíður á leið til Akureyrar. Þar er möguleiki að ná síðustu vél til Reykjavíkur eða einfaldlega slappa af og njóta Akureyrar.
Listi yfir nauðsynlegan útbúnað til ferðarinnar
- Vind- og vatnsheldur jakki (Gore tex eða sambærilegt)
- Vind- og vatnsheldar buxur (Gore tex eða sambærilegt)
- Grunnlag (ull eða gerviefni)
- Skíðabuxur
- Jakki (mjúkskel, flís)
- Léttur dún eða trefja jakki
- Húfa
- Vettlingar (2 pör)
- Skíðasokkar
- 30-40 lítra bakpoki (hentugur til skíðaiðkunar)
- Hitabrúsi eða vatnsflaska (1-2 lítra)
- Sólgleraugu
- Skíðagleraugu
- Sólar- og varakrem
- Skíði
- Skíðaskinn og skíðabroddar (broddarnir eru nauðsyn)
- Skíðastafir
- Snjóflóðsendir, nemi og skófla
- Baðföt fyrir heimskautið
- Lítið skyndihjálparsett með persónulegum lyfjum, blöðruplástrum o.s.frv.
- Myndavél
Brottfarir vor 2013
- Nánari dagsetningar verða settar inn fljótlega
- Eða samkvæmt samkomulagi
Hafðu samband
Fyrir nánari upplýsingar og verð vinsamlegast hafið samband:
- Birna Lind Björnsdóttir, Sölu- og markaðsstjóri
- E-mail: birna@northsailing.is
Innifalið
- Akstur Akureyri - Húsavík - Akureyri.
- Allur matur frá hádegi á 1. degi til hádegis á 5. degi.
- Gisting um borð í skonnortunum Hauki eða Hildi.
- Þjónusta fjallaleiðsögumanns alla ferðina.
- Notkun öryggisbúnaðar og samskiptatækja.
- Leiga á jöklabúnaði, reipum, ólum, broddum.
Ekki innifalið
- Ferðalag til og frá Akureyri.
- Leiga á öðrum búnaði en talin er hér að ofan.
- Áfengi.
- Persónuleg slysatrygging.
- Þjónustugjald



























