Að heimskautsbaugi NSE-1
Langar þig að prófa eitthvað nýtt? Sjá Ísland frá öðru sjónarhorni? Norðursigling býður upp á nýjan möguleika til að njóta íslenskrar náttúru á einstakan hátt.
Tveggja daga ævintýrasigling á annarri af tveimur íslensku skonnortunum sem veitir einstakt tækifæri til að nálgast náttúruna og áhugaverða sögulega staði. Ferðin veitir tækifæri til stórbrotinnar upplifunar á hinni rómuðu miðnætursól, þjálfunar í siglingum, hvalaskoðunar, fuglaskoðunar og margt fleira. Siglt er frá Húsavík og farið í land í Flatey og Grímsey.
Brottfarir 2012
- Alla miðvikudaga frá
2. maí - 11. júlí - Hafa samband
Leiðsögn
- Leiðsögumaður með víðtæka siglingareynslu og þekkingu á lífríki
Innifalið
- Allar máltíðir
- Léttvín, bjór og gos
- Gisting um borð
- Sérstakir siglingagallar
- Aðgangur að Hvalasafninu á Húsavík
- Viðurkenning um að hafa farið yfir heimskautssbaug
- Slöngubátsferð við Grímsey
Verð 2012
- 96.800 kr. á mann / 590 evrur á mann



























