Knörrinn

Knörrinn var fyrsti báturinn á Íslandi til að fara í áætlunarferðir í hvalaskoðun. Hann var byggður á Akureyri árið 1963 og hefur allt tíð síðan reynst hið mesta happafley. Knörrinn hefur marga hildi háð og stóð meðal annars af sér hið fræga „apríl veður“ 1963 þegar hann var mánaðargamall á veiðum norður af landinu. Í þessu sama veðri fórust bátar og skip og með þeim 16 sjómenn. 1968 var honum siglt á ísjaka á fullri ferð en það, sem og annað, stóð hann af sér og er það spurning hvort að það sé gullpeningi sem settur var undir formastrið við smíði bátsins að þakka eður ei.
Knörrinn kom til Húsavíkur árið 1994 og var endurnýjaður um veturinn. Síðan 1995 hefur Knörrinn siglt óslitið í hvalaskoðun um Skjálfandaflóa.
Upplýsingar
| BT: | 20 |
| ML: | 15,2m |
| B: | 4,1m |
| Skrokkur: | Eik |
| Smíði: | Akureyri |
| Byggt/endurbyggt: | 1963/1995 |
| Farþegar: | 46 |
| Vél: | Cummins |
| kW/hö: | 183/249 |
| Höfn |
Húsavík |
| Fáni: | Ísland |




























