Bátaleiga
Bátar Norðursiglingar eru allir til útleigu hvort sem áætlaðar eru lengri ferðir eða styttri og jafnvel þótt ekki sé ætlunin að leggja frá landi. Sumir bátanna eru vel búnir neðanþilja og henta einkar vel fyrir veislur, fundi og samsæti. Allt er mögulegt og um að gera að hafa samband og spyrjast fyrir.
Knörrinn
Farþegafjöldi: 46
Tonnafjöldi: 20
Lengd í metrum: 15.15
Knörrinn hentar vel til styttri ferða en gefur litla möguleika á viðveru neðan þilja.
Haukur
Farþegafjöldi: 46
Tonnafjöldi: 20
Lengd í metrum: 15,65
Haukur er tveggja mastra skonnorta og hentar ágætlega til styttri sjóferða jafnt sem lengri. Neðan þilja er aðstaða og svefnpláss fyrir 8 farþega auk áhafnar. Eldunaraðstaða er með ágætum.
Bjössi Sör
Farþegafjöldi: 56
Tonnafjöldi: 30
Lengd í metrum: 16,40
Bjössi Sör hentar vel til styttri ferða, innréttaður með setuplássi neðan þilja.
Hildur
Farþegafjöldi: Ekki vitað
Tonnafjöldi: 35
Lengd í metrum: 18
Hildur hentar vel til allra ferða og er ríkulega búin neðan þilja bæði til samsætis og viðveru á siglingu, tekur 8 í gistingu og 14 í sæti. Hildur er tveggja mastra skonnorta og einstaklega glæsileg þegar kemur að viðbúnaði innanstokks.
Náttfari
Farþegafjöldi: 90
Tonnafjöldi: 60
Lengd í metrum: 22,97
Náttfari er búinn glæsilegum veislusal fyrir 50 manns og hentar vel til styttri og meðallangra siglinga.
Garðar
Farþegafjöldi: Ekki vitað
Tonnafjöldi: 109
Lengd í metrum: 28
Garðar hentar vel til styttri ferða.




























